Öryggisstefna
Fjarskiptastofa hefur mótað eftirfarandi öryggisstefnu en við mótun hennar var stuðst við staðalinn ISO/IEC 27001. Öryggisstefnunni er ætlað að tryggja rétta meðferð, vörslu og öryggi upplýsinga sem stofnunin hefur undir höndum. Stefnan er mótuð með það í huga að uppfylla kröfur laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu, lög um fjarskipti nr. 81/2003, lög um póst nr. 19/2002 og lög um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga nr. 90/2018 og annara krafa sem tengjast upplýsingaöryggi.
Það er stefna Farskiptastofu:
- Að upplýsingar séu réttar og aðgengilegar á hverjum tíma þeim sem hafa aðgangsheimild
- Að leynd upplýsinga og trúnaði sé viðhaldið
- Að trúnaðarupplýsingar séu óaðgengilegar, eða berist ekki til óviðkomandi
- Að upplýsingar séu varðar gegn skemmdum, eyðingu eða uppljóstrun af aðilum sem ekki hafa aðgangsheimild, hvort sem er af ásetningi eða gáleysi
- Að frávik, brot eða grunur um bresti í upplýsingaöryggi séu tilkynnt öryggisstjóra, eða viðkomandi yfirvöldum eftir því sem við á, og rannsökuð
- Að vinna að stöðugum umbótum
Stefna Fjarskiptastofu í öryggismálum er bindandi fyrir alla starfsmenn hennar.
Síðast uppfært: Reykjavík 21. júní 2019
Hrafnkell V. Gíslason, forstjóri Fjarskiptastofu