Hoppa yfir valmynd
Tungumál EN
Heim

Fyrirmynd að auglýsingu vegna fyrirhugaðrar lagningar ljósleiðara

Þegar sveitarfélög áforma að ráðast í lagningu ljósleiðara er gert ráð fyrir að birtar séu auglýsingar um áformin og áhugi markaðsaðila á verkefninu kannaður.

Hér fyrir neðan er fyrirmynd að texta slíkrar auglýsingar. Eru sveitarfélög hvött til að nota þessa fyrirmynd þegar þau auglýsa áform sín um lagningu ljósleiðara. 


 

''

 
 
 
 
 
 
 
 
 

KÖNNUN Á ÁFORMUM MARKAÐSAÐILA VARÐANDI UPPBYGGINGU FJARSKIPTAINNVIÐA

Fyrirhuguð er lagning ljósleiðara í [...], sem veita á öruggt þráðbundið netsamband í dreifbýli sveitarfélagsins. Gert er ráð fyrir að tengja öll lögheimili í sveitarfélaginu. Einnig standi eigendum frístundahúsa og fyrirtækja, sem staðsett eru í dreifbýli [...], til boða að tengjast ljósleiðaranum. Gert er ráð fyrir að öllum þjónustuveitum verði heimilað að bjóða þjónustu sína á ljósleiðarakerfinu gegn gjaldi.

Auglýst er eftir:

A.  Aðila, eða aðilum, sem sannanlega ætla að koma á ljósleiðaratengingu eða annarri a.m.k. 100Mb/s þráðbundinni netþjónustu í [...] (utan þéttbýlis) á næstu þremur árum á markaðslegum forsendum.

B.   Hæfum aðila, eða aðilum, til að taka að sér að byggja upp ljósleiðarakerfi með stuðningi frá opinberum aðilum og e.t.v. reka til framtíðar, komi til þess að enginn aðili svari lið A. hér að ofan. Aðilar sem óska eftir stuðningi skulu uppfylla tilteknar kröfur um fjarskiptaleyfi, fjárhagslegan styrk, reynslu af uppbyggingu og rekstri sambærilegra kerfa, raunhæfa verkáætlun o. fl.

C.  Eiganda mögulegra fyrirliggjandi fjarskiptainnviða í [...] sem er tilbúinn að leggja þá til við uppbygginguna gegn endurgjaldi sem bjóðist öllum sem lýsa yfir áhuga á uppbyggingu samkvæmt B. hér að ofan á jafnræðisgrundvelli.

Áhugasamir skulu senda tilkynningu til [...] á netfangið [...] fyrir kl. 12:00 þann [...]. Í tilkynningunni skal koma fram nafn og kennitala aðila, auk upplýsinga um ofangreint eftir því sem við á.

Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum og skýringum og skulu slíkar fyrirspurnir sendar á netfangið: [...]

Áhugakönnun þessi er ekki skuldbindandi, hvorki fyrir [...] né þá sem sýna verkefninu áhuga.

 

 



Fannst þér efnið á síðunni hjálplegt?Nei
Takk fyrir

Ábending þín er móttekin

Af hverju ekki?